02. maķ 2006 klukkan 19:42
Siguršur Mįr Siguršsson
15. aprķl 2006 klukkan 08:23
Jæja, núna hef ég alveg drullað upp á bak, það gengur ekki að blogga ekki í þennann óratíma, mér líst ekkert á sjálfann mig núna! Ég hef ekki neitt þannig mikið að segja en ákvað samt sem áður að reyna að halda lífi á þessari síðu svo að þetta haldist gangandi! Annars er ég svona að gæla við þá hugmynd að fá mér aðra síðu sem er svona sér sett saman, ekki eitthvað blog.is/brókaþefur eða eitthvað þannig, það gengur ekki.. eitthvað svona sem enginn annar er líka með:)
Eins og flestir andlega heilir menn sjá þá hef ég sett nýja mynd hérna efst á síðuna, nennti ekki að hafa þetta alveg allt saman svart, allt of líflaust eitthvað , ákvað þá bara að setja einhverja ferskari liti í þetta:) Er þetta að gera sig eða erum við í ruglinu? Var hin myndin flottari?:) Segið álit ykkar endilega:)
Heyrðu, svo er málið með næsta blogg... það ætti hvert mannsbarn að vita hver Jean Claude Van Damme er, ef þú veist það ekki ættiru bara að vera áfram inni í skáp, hugsa þinn gang og koma út þegar þú ert tilbúinn eða drullast á
- þennann- link og lesa sér aðeins til um manninn og jafnvel
-þennann- til að skoða myndir af goðinu! En það sem ég hafði í huga er að skrifa dágóða frásögn um manninn næst, hvernig taka menn í það?
Nú vil ég fá svör við þessu með Van Damme og nýju myndina þarna uppi!!!
Ég bið að heilsa bless!
Siguršur Mįr Siguršsson
11. aprķl 2006 klukkan 22:09
Ástæða bloggtitilsins er sú að ég er ekki frá því að ég sé örlítið latur bloggari á köflum. Það er svosem allt í lagi held ég.. :)
Heyrðu, ég var hérna að lesa í DV áðan að britpoppararnir í Oasis eru að fara að spila hérna á klakanum, maður veit svosem aldrei hverju maður á að trúa þegar um DV er að ræða, annars væri eflaust gaman að fara þar sem þessi hljómsveit á nokkur ágætis lög. Já.. ég gleymdi að minnast á það að þeir munu (ef þetta er rétt) spila á Manchester tónleikunum sem haldnir verða einhverntíman á næstu vikum.

Þess má einmitt geta að Noel Gallagher, hinn yfirlýsingaglaði og uppátækjasami meðlimur Oasis sem hefur hingað til forðast það eins og heitann eldinn að opinbera hinar mýkri hliðar sínar og ríghaldið í allt sem talist getur rokk hefur komið út úr skápnum með aðdáun sína á sænsku hljómsveitinni ABBA
Það kemur því talsvert á óvart að kappinn skuli lýsa því yfir á opinberum vettvangi að hann sé mikill aðdáandi sænsku hljómsveitarinnar Abba. “Abba heillar mig algjörlega upp úr skónum.
Lagasmíðarnar eru algjörlega frábærar og hljómurinn jafnvel enn betri. Ég hef aldrei skilið það að fólk skuli tengja Abba við lúðahátt og hallærislegheit.”
Já það má með sanni segja að það sé margt skrýtið í kýrhausnum! En þetta blogg var nú bara rétt svona til að láta vita af mér ;) kem með blogg fljótlega! Verið dugleg að kommenta :)
Siguršur Mįr Siguršsson
08. aprķl 2006 klukkan 07:20
Jæja, ég bloggaði gríðarlega langt í dag eeeen það klúðraðist því að ég ýtti á einhvern link og ég misþyrmdi skrifborðinu mínu vegna þeirra mistaka!
Úrslitin fóru jú þannig í Idolinu að Hvíti Kóngurinn vann og Ína hafnaði í 2. sæti! En hey, Clay Aiken gerði meiri og betri hluti en Ruben Studdard í american idol um árið.. Clay var í öðru og Ruben fyrsta svo að þetta gæti alveg orðið gott fyrir hana Ínu, hún stóð sig mjög vel í kvöld og ég var mjög ánægður með hana, hún fékk 45% atkvæða og Snorri þá væntanlega 55%
Annars er ég svo voðalega latur við að skrifa núna í augnablikinu útaf mistökunum hérna í dag þegar ég bloggaði!
Núna rétt í þessu voru þær fréttir að berast að ónefndur frændi minn væri farinn að leika í fullorðinsmyndum, eða það sagði föstudagsljósmyndarinn okkar en hér má sjá skjáskot úr nýjustu mynd hans sem ber hið skemmtilega nafn Anal Blaster.
Já, nú dæmir hver fyrir sig!
Neinei segi svona, þetta er ekkert fullorðinsmynd seisei!!
bara gott móment;)
Siguršur Mįr Siguršsson
06. aprķl 2006 klukkan 02:31
Sælir kæru lesendur, jú það er rétt.. annað bloggið á þessari síðu orðið að veruleika! Hver hefði svosem trúað því? Allavega skulum við segja að Rúnar Róberts hefði ekki kært sig um neitt rugl!
Núna fyrir einhverjum ómældum mínútum voru Arsenal að tryggja sér áframhaldandi þáttöku í meistaradeildinni en það var ítalska stórveldið, Juventus sem tók á móti Arsenal í kvöld. Fyrri leikur liðanna fór 2 - 0 fyrir Arsenal og er vægast sagt hægt að segja að ungi spánverjinn, Cesc Fabregas hafi átt stórleik, hann á að öllum líkindum eftir að gera góða hluti í framtíðinni. Leikurinn í kvöld var markalaus og eins og glöggir menn ættu að sjá þá þýðir það 0 - 0. Juventus voru meira með boltann en gerðu samt ekkert of gáfulega hluti með hann þó svo að það hafi jú skapast eitt og eitt færi, besti leikmaður þeirra á vellinum var að mínu mati Pavel Nedved en hann fær launin sín greidd með tékka (búrrumtiss) Arsenal fengu jú líka sín færi en þau komu flest í seinni hálfleik. Besti maður leiksins... get ekki alveg gert upp á milli Henry og Fabregas, svo voru reyndar Senderos og Eboue að gera gott mót! Arsenal munu þá mæta Villareal í undanúrslitum!
Nokkuð góðir hérna drengirnir!! EN kæru lesendur... nenniði að smella síðunni minni í linka hjá ykkur og auglýsa hana hressilega:D?
takktakk og bæbæ:)
Siguršur Mįr Siguršsson
05. aprķl 2006 klukkan 01:28
Jæja lömbin mín stór og smá, hvað höfum við hér? Við höfum nýtt helvítis blogg og ekkert múður með það!!! Ívar Guðmunds hefði aldrei þurft að sætta sig við þvílíkt mótlæti!
Ég verð nú að segja það að ég er að fíla þetta blogg mun betur en endaþarmsúrganginn á www.blog.central.is... allavega enn sem komið er:)
Heyrðu já!! Þeir sem ekki vita það.. ég er að fara að hundskast í borg óttans og bleytunnar núna í lok þessa mánaðar ef allt gengur upp, þar mun ég dvelja um óákveðinn tíma. Til að byrja með ætla ég að fara að vinna, á samt eftir að finna vinnu en svo ætla ég í skóla. Svo mun bara allt koma í ljós mínir elskulegu vinir, vandamenn, kunningjar og fólk sem ég þekki ekki mikið en hefur ósköp gaman að blogginu mínu :)
Þetta verður ekkert lengra í bili en ég vil biðja ykkur krúttin mín um að kommenta OG skrifa í gestabókina.. svona rétt til að gefa mér smá start í þessu! Einnig vil ég biðja ykkur um að setja síðuna mína í linka hjá ykkur og svo auglýsa hana smá í næsta bloggi hjá ykkur :);*